ALLT Fasteignasala og Einar Gunnarsson lfs. kynna í einkasölu vel skipulagða 63 fm íbúð í snyrtilegu tveggja hæða húsi með sér inngang. Aukin lofthæð er í eldhús- og stofurými. Eigninni fylgir sér stæði (bílastæði nr 6.) í upphituðum bílakjallara og er 5,3 fm geymsla fyrir framan stæðið. Búið er að draga fyrir hleðslustöð. Í bílakjallara eru einnig tvö bílaþvottaplön og sérstök dekkjageymsla. Í sameign er sameignileg hjóla- og vagngeymsla.
Fjölbýlishúsið (Berjarimi 20-28) er byggt í U og er það afgirt með leiktækjum og getur verið mjög skjólsamt í garðinum.
Skv. Þjóðskrá er birt stærð eignarinnar: Íbúð: 57,7 fm og geymsla 5,3 fm.
Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Einar Gunnarsson - löggiltur fasteignasali á einar@allt.is eða í síma 560-5512 - HÉR má nálgast söluyfirlit samstundis
Nánari lýsing:
Andyri: Komið inn um sér inngang í flísalagt andyri með innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott, parketlagt og með stórum innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu, ásamt baðkari með sturtu aðstöðu.
Þvottahús: Inn af baðherberginu er þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt opnanlegum glugga.
Eldhús: Er í opnu rými ásamt stofu og er það parketlagt með góðu skápaplássi.
Stofa: Björt og parketlögð með útgengi á svalir sem snúa út í garð.
Um er að ræða vinsælt fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttafélag Fjölni, Grafarvogslaug, Gufunes, Spöngina, Egilshöll og alla helstu þjónustu.
Kostnaður kaupanda:
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.