ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu. Rúmgott, 5 herbergja, vel skipulagt einbýlishús að Háholti 14, 230 Reykjanesbæ. Húsið er samkvæmt FMR 165 fm, þar af bílskúr 32 fm. Húsið er vel staðsett, bjart og hentar vel fyrir barnafjölskyldur en 4 svefnherbergi eru í húsinu og allt helsta íþróttastarf í göngufæri. Komið er inn í flísalagða forstofu. Húsið sjálft samanstendur af rúmgóðri stofu sem opin er við borðstofu og eldhús. Gengið er út á mjög stóran og skjólgóðan suðurpall frá borðstofu. Þar er heitur pottur og gert ráð fyrir köldum potti. Fallegt baðherbergi er á herbergisgangi. Frá forstofu er gengið inn í rúmgott þvottahús þar sem gert er ráð fyrir öðru salerni með sturtu. Frá þvotttahúsi er innangengt í nokkuð góðan bílskúr með geymslu innaf sem hægt væri að nýta sem 5. svefnherbergi.
Eign sem vert er að skoða. Mjög vinsæl staðsetning í Holtaskólahverfi í nálægð við alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið inn í alrými hússins en stofan/borðstofan er björt og opin.
Forstofa: Með flísum og millihurð.
Eldhús: Svartmáluð innrétting með góðu skápaplássi.
Stofa/Borðstofa: Bjart stórt rými, útgengt á sólpall.
Herbergi: Þrjú rúmgóð barnaherbergi með parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, handklæðaofni, baðkari og upphengdu salerni.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með vaski, flotað gólf, útgengt á sólpall.
Garður: Stór lóð, stór nýlegur sólpallur með heitum potti.
Bílskúr: Innangengur vel skipulagður með hita og rafmagni, gott geymslupláss.
Eign sem vert er að skoða
Nánari upplýsingar veita
Jóhann Ingi lgf. í síma 844-8078 eða johann@allt.is
Unnur svava lgf. í síma 868-2555 eða unnur@allt.is
Vantar eignir á skrá, persónuleg þjónusta. Við sýnum allar eignir.
ALLT FASTEIGNIR – Mosfellsbæ - REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91) - Grindavík
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.