ALLT fasteignasala sími 560-5500 kynnir Lækjamót 3, parhús byggt árið 2004. Birt stærð eignar er 136,2 fm og þar af er bílskúr 27,7 fm ásamt geymslulofti. Eignin skiptist í forstofu, komið úr forstofu í opið rými sem tengir herbergi, stofu og eldhús saman. Gólfefni eru parket. Eldhúsinnrétting uppfærð að hluta. Þrjú svefnherbergi, öll rúmgóð. Bílskúr er rúmgóður með stiga upp á nýlegt rúmgott geymsluloft. Lóð er að hluta frágengin með sólpalli.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þorbjörnsson lgf í síma 560-5501 og á netfanginu pall@allt.is
*** Þrjú rúmgóð svefnherbergi
*** Vinsæl staðsetning, góð fjölskyldu eign
*** Sólpallur
*** Rúmgóður bílskúr
Aðkoma: Malarborið plan
Forstofa með flísum og skáp
Eldhús í eldhúskrók með flísum á gólfi innrétting hefur verið viðbætt að hluta.
Stofa og borðstofa í opnu rými við eldhús. Gengið út á sólpall.
Hjónaherbergi með skáp
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, innréttingu og baðkari
Tvö barnaherbergi með skáp í öðru.
Þvottahús með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi
Bílskúr rúmgóður með góðu geymslulofti
Rúmgóður sólpallur
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Elín Frímannsdóttir
Aðstoðarmaður fasteignasala
elin@allt.is
560-5521 / 867-4885
Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali
pall@allt.is
560-5501
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Kostnaður kaupanda:
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.