ALLT FASTEIGNASALA – kynnir í einkasölu:
Virkilega rúmgott og fallegt einbýlishús við Steinsás 29, Reykjanesbæ. Eignin er skráð 260 fm. þar af er bílskúr 35.5 fm. Húsinu er í dag skipt í 4. íbúðir. Glæsileg 4. herbergja íbúð á efri hæð hússins með sér inngangi og glæsilegum útsýnissvölum með heitum potti. Stórt geymsluloft er yfir allri hæðinni. Tvær 2. herbergja íbúðir og ein stúdíó íbúð á neðri hæð hússins og í bílskúr. Lítið mál er þó að breyta eigninni aftur í stórt einbýlishús þar sem gat fyrir hringstiga er enn í plötu.
** Frábært tækifæri fyrir þá sem annað hvort vilja stórt einbýlishús, eða búa á efri hæð hússins og leigja út íbúðir á neðri hæð**
** Seljendur skoða skipti á rað/par eða einbýlishús í ytri-njarðvík eða á nýlegu rað/par eða einbýlishús í Sandgerði **
Efri hæð: Samanstendur af 3. svefnherbergjum, þvottahúsi, baðherbergi, rúmgóðri stofu/borðstofu og eldhúsi. Stórar útsýnissvalir með dásamlegu útsýni yfir hafið og heitum potti. Stórt geymsluloft er yfir allri hæðinni. Efri hæð er björt, rúmgóð og hefur öll verið smekklega endurnýjuð á síðustu 2 árum.
Árið 2020
- Nýjar hurðar frá Birgisson
- Nýtt parket og nýjir fataskápar.
- Nýtt eldhús og ný eldhústæki
- Baðherbergi tekið í gegn, ný innrétting og tæki
- Gerður var stigi upp á háaloft. Útbúið gólf þar og því breytt í gott geymslurými.
- Hurð færð á þvottahúsi, úr eldhúsi og inn í forstofu,
- Bílaplan var steypt, fyrir framan og við hlið hússins, lagnir voru lagðar fyrir hleðslustöð og útiljós
- Reistur var 15m2 bjálkakofi sem er út í garði
- Rafmagnshitalögn var sett í stiga upp á aðra hæð
- Grasþökur voru lagðar við hlið hússins
Árið 2021
- Sett var upp glerhandrið en hægt er að setja ledborða í handlistann.
- Svalir og stigi flotað
- Ný útiljós voru sett upp á hluta hússins
Neðri hæð: Samanstendur af einni 2. herbergja íbúð og einni stúdíó íbúð. Í 2. herbergja íbúðinni er svefnherbergi, eldhús, stofa og baðherbergi. Stúdíó íbúðin hefur alrými, eldhúsaðstöðu og baðherbergi. Sameiginlegur inngangur er í þessar íbúðir.
Bílskúr: 2. herbergja íbúð með svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi. Sér inngangur.
*** Ótrúlega spennandi og fallegt hús með óteljandi möguleika sem vert er að skoða***
Nánari upplýsingar:
Unnur Svava löggiltur fasteignasali s. 8682555 / unnur@allt.is
Elínborg Ósk löggildur fasteignasali s. 823-1334 / elinborg@allt.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.