ALLT FASTEIGNIR fasteignasala kynnir í sölu: Vandaðar lúxusíbúðir í hjarta Reykjanesbæjar að Hafnargötu 29.
Vel skipulagðar íbúðir í 5.hæða lyftuhúsnæði.
BÓKANIR SKOÐANNA FARA FRAM Í SÍMA 560-5500 EÐA Á NETFANGINU ALLT@ALLT.IS
Sjáðu eignina í 3D sjónarhorni
Eignin er tilbúin til afhendingar.
Íbúðin skilast fullbúin.
Íbúð 201 - falleg 121.7m2 íbúð, þar af 14.1m2 geymsla.
Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Góðar svalir.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Forstofa með fataskáp.
Eldhús: Opið við alrými. Falleg innrétting með eldhústækjum frá Electrolux ásamt góðri eyju. Ísskápur og uppþvottavél innbyggð.
Stofa: Opin og björt stofa með gólfsíðum gluggum, fallegt útsýni yfir hafið. Útgengt á svalir.
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnhergin: Eru tvö, annað rúmgott með fataskáp, hitt minna án fataskáps.
Baðherbergi: Falleg innrétting, rúmgóð sturta með flísalögðum botn, sturtugler hert, flísalagt að mestu og sturtutæki eru hitastýrð, upphengt salerni.
Þvottaherbergi: Gólf flísalagt.
Geymsla: Sérgeymsla á sameiginlegum geymslugang jarðhæðar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Skilalýsing liggur fyrir hjá fasteignasölunni.
Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamáti þegar það verður lagt á íbúðina.
Byggingaraðili hússins er Upp-sláttur ehf. traust fyrirtæki sem hefur starfað í tugi ára og hefur langa og góða þekkingu á byggingu fasteigna. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á vandaðar íbúðir og góða þjónustu.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.