***Eignin er seld og er í fjármögnunarferli***
ALLT FASTEIGNIR fasteignasala Ármúla 4-6 sími 5605500 kynnir í einkasölu vel skipulagða og bjarta íbúð á 1. hæð, ásamt bílskúr í góðu tvíbýlishúsi á Kársnesinu í Kópavogi. Eignin er mjög vel staðsett og stutt er í alla helstu þjónustu. Einstakt útsýni er frá svölum, stofu og eldhúsi í norðurátt. Sjón er sögu ríkari.
Ekki verður haldið opið hús, en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að bóka skoðun.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Einar Gunnarsson - löggiltur fasteignasali á einar@allt.is eða í síma 843-0244
Eignin skiptist í: Skv. Þjóðskrá er birt stærð eignarinnar 145,1 fm. Íbúðin sjálf er 116 fm og bílskur 29,1 fm.
Nánari lýsing:
- Forstofa: Flísar á gólfi með góðum fataskáp.
- Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, flísar á gólfi og milli skápa.
- Stofa: Parketlögð og björt, útgengt út á svalir og út á sólpall. Fallegt útsýni til norðurs.
- Svefnherbergi 1&2: Parketlögð, rúmgóð og með góðum fataskápum.
- Barnaherbergi: Notað sem vinnurými í dag, parketlagt með góðum fataskáp.
- Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum með baðkari og sturtuklefa.
- Svalir: Norður-svalir, útgengt frá stofu.
- Sólpallur: Girtur pallur með sóltjaldi, útgengt frá stofu.
- Þvottaherbergi/Geymsla: Innaf eldhúsi, með fínu skápaplássi, tengi fyrir þvottavél og þurkkara.
Farið hefur verið í eftirfarandi framkvæmdir skv. seljanda:
- Eignin hefur fengið gott viðhald gegnum árin.
- Nýlega hefur verið skipt um flísar í sturtubotni inn á baðherbergi.
- Skipt var um niðurföll seinasta sumar.
- Skipt hefur verið um gler í svefnherbergjum, eldhúsi, þvottahúsi og stofu að hluta.
ALLT FASTEIGNIR – Reykjavík (Ármúla 4-6) - REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91) - GRINDAVÍK (Víkurbraut 62) – VESTMANNAEYJUM (Goðahrauni)
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4 - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.kr 2.500 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.