** Seld með fyrirvara um fjármögnun**
** Frábær fyrsta eign **
ALLT fasteignasala í Reykjanesbæ kynnir í einkasölu: Skógarbraut 919.
Mikið endurnýjuð íbúð á þriðju hæð með tveimur svefnherbergjum. Svefnherbergi eru nokkuð rúmgóð. Baðherbergi er nýlega endurnýjað á smekklegan hátt. Stofa og borðstofa eru í opnu rými tengt eldhúsi. Nýleg falleg gólfefni eru á íbúðinni og sólríkar svalir. Góður sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn. Sér geymsla ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu og þvottahús eru á fyrstu hæð. Einstaklega skemmtilegt útsýni bæði yfir sjó og fjöll.
SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á EIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐI, HELST Í KÓPAVOGI
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Ósk lfs í síma: 823-1334 / elinborg@allt.is
*Falleg eign sem hefur verið endurnýjuð töluvert að utan sem innan, endurbótum lauk 2017*
Nánari lýsing:
Anddyri: Nýlegt ljóst parket á gólfi.
Eldhús: Nýlegt parket á gólfi, hvít innrétting.
Stofa/borðstofa: Nýlegt parket á gólfi.
Herbergi: Nýlegt parket á gólfi, góður hvítur klæðaskápur.
Hjónaherbergi: Nýlegt parket á gólfi, hjónaherbergi er rúmgott með góðum hvítum klæðaskáp.
Baðherbergi: Nýlega uppgert með baðkari og fallegum flísum.
Þvottarhús: Sameiginlegt
Geymsla: Sérgeymsla á 1. hæð.
Vagna og hjólageymsla: Sameiginleg á 1. hæð.
Stór garður með leiktækjum
Svalir
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.