*** Eign seld með fyrirvara ***
Mikil eftirspurn var eftir eigninni og því vantar okkur fleiri sambærilegar eignir á skrá
ALLT FASTEIGNIR – Fasteignasala kynnir í einkasölu einstaklega vel skipulagða, bjarta og fallega íbúð í kjallara en ekki niðurgrafinn á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Stutt er í alla þjónustu og út á aðal stofnbrautir höfuðborgasvæðisins.
Birt stærð er 95,2 fm
Íbúð 95,2 fm
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir
Aron M. Smárason aðstoðarmaður fasteignasala á aron@allt.is eða í síma 888-7282
Bjarklind Þór löggiltur fasteignasali á bjarklind@allt.is eða í síma 690-5123
*Vinsamlegast mætið með grímu í skoðun á eign.*
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi
Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð með fataskáp. Flísar á gólfi.
Stofa er snyrtileg og mjög rúmgóð. Þar er stofuborð nálægt eldhúsi við glugga sem snýr út i garð og mjög rúmgóð setustofa fyrir miðju. Gengið er út á verönd í bakgarði út frá miðju stofu.
Eldhús er fallegt og hefur verið endurhannað. Falleg viðarborðplata frá Fantófell með helloborði er fyrir miðju í mahony lit. Upprunalegar flísar eru á vegg við helluborðið með lýsingu og löngum tekk skáp þar fyrir ofan. Flísar eru á gólfi. Vönduð IKEA innrétting með innbyggðri uppþvottavél. Pláss er fyrir stóran ísskáp sem fellur inn i innréttinguna.
Herbergi 1 er parketlagt, með stórum tekk fataskáp og nýlegum glugga.
Herbergi 2 er parketlagt, með tekk fataskáp og glugga.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með flísum á vegg og gólfi. Fallegur vaskur situr ofan í fallegri viðarplötu í þessum mahony lit. Sturtan er með flísum á gólfi og sturtugleri. Innréttingar frá IKEA nýlegar.
Þvottahús er í sameign. Gengið inn frá ganginum og er aðeins nokkur skref þangað. Pláss fyrir eigin þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign.
Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og alla helstu verslun og þjónustu.
Fylgdur okkur á facebook: https://www.facebook.com/aronmsmara
ALLT FASTEIGNIR – REYKJANESBÆ (Hafnargötu 91) - GRINDAVÍK (Víkurbraut 62) Reykjavík (Ármúla 4-6) -– VESTMANNAEYJUM (Goðahrauni)
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati. 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.kr 2.500 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.