ALLT FASTEIGNIR, Eldey Vestmannaeyjum, Goðahrauni 1 – SÍMI 481-1313 KYNNA
Kirkjuveg 64 í Vestmannaeyjum. Upplýsingar
gefur Dísa Kjartansdóttir í síma 861-8901 disa@alltfasteignir.is
Lýsing:
Um er að ræða einbýlishús á þremur hæðum, með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum við Kirkjuveg 64 í Vestmannaeyjum. Eignin sem er 183,9m2 er byggð úr steypu árið 1925. Aðalhæðin telur rúmgott eldhús, mjög rúmgóða stofu sem rúmar bæði borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu. Þá er salerni á aðalhæðinni og inngangur. Þá er stigi upp á efri hæðina sem telur fjögur svefnherbergi og baðherbergi með baðkari/sturtu. Þá er stigi niður í kjallara sem telur rúmgóðar geymslur, sem og gott þvottahús. Einnig er innangengt að utan inní kjallara. Búið er að skipta um glugga á austurhlið hússins 2018 og var húsið lagfært og málað að utan sama ár. Eignin er staðsett mjög miðsvæðis, frábært útsýni er til allra átta, stutt í bæinn. Frábærir möguleikar liggja í þessu húsi. Hægt er að bæta við herbergjum á miðhæðinni á einkar auðveldan hátt, baðherbergi eru á báðum hæðum og eldhúsið einkar rúmgott. Eign sem tækifærin liggja í.
Aðalhæð (66m2)
Anddyri/gangur með flísum á gólfi. Fatahengi í anddyri.
Gestasalerni flísar á gólfi, vaskur og salerni.
Stofa/borðstofa Stór og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Klæðning á veggjum að hluta til.
Eldhús er með eldri innréttingu sem er hvítlökkuð og rúmgóð. Flísar á milli skápa og flísar á gólfi.
Efri hæð (68,9m2) Teppalagður og mjög skemmtilegur rúmgóður stigi, teppalagður gangur.
Herbergi (1) með parketi á gólfi. Rúmgott. Lausir rúmgóðir skápar.
Herbergi (2) með spónparketi á gólfi. Fastur fataskápur.
Herbergi (3) með spónparketi á gólfi. Fastur fataskápur.
Herbergi (4) parket á gólfi. Nýlegur fataskápur.
Baðherbergi með dúk á gólfi. Ágætis innrétting. Eldri salerni og baðkar(sturta).
Kjallari (49m2)
Þvottahús: Er í kjallara. Fermetrafjöldi í kjallara er heldur meiri en gefið er upp sökum lofthæðar. Einna mest er hún í þvottahúsi sem er einkar vel skipulagt. Mjög rúmgóðar geymslur. Útgengt úr kjallara. Mjög hlýtt er í kjallara þar sem hitakútur er staðsettur þar og einkar gott að þurrka þvott í rýminu.
Geymsla: Fínar geymslur.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.500 af skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – Fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. kauptilboð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.